Ljótasta myndin 2004-2005

Eins og fólk veit, þá hef ég mjög gaman af að gretta mig á myndum (og að taka grettusjálfsmyndir reyndar líka) þannig að nú er komið að því að taka til 10 ljótustu myndirnar (eða flottustu eftir því hvernig maður lítur á það!). Myndirnar koma einungis frá árunum 2004-2005, þar sem að ég á ekki eldri myndir á tölvunni en þær koma kannski síðar. Síðan ætla ég að leyfa öllum sem það vilja að kjósa um hvaða mynd er ljótust. Þá er bara að kommenta númerunum á þeim þremur myndum sem hver og einn vill setja í 1., 2. og 3. sæti og skrifa nafnið sitt undir...Ef fólk þorir, þá er hægt að smella á hverja mynd til að sjá hana í fullri stærð í nýjum glugga :) ...here we go:




Mynd 1

(sjálfsmynd janúar 2006)





Mynd 2
(þessi heitir spassi
í tölvunni minni)







Mynd 3
(tekin í jólaboði
hjá Ásdísi Eir)





Mynd 4
(rútumynd frá
Kaupmannahöfn
2005)



Mynd 5
(jólamyndin 2005)




Mynd 6
(í grillveislu hjá
deild 15, Kleppi...)




Mynd 7
(sjálfsmynd morguninn
eftir djamm sumarið
2005)




Mynd 8
(tekin íLondon í október
þegar ég fór að heimsækja
Röggu...ég held að hún hafi
viljað fá betri mynd :p)




Mynd 9
(tekin í síðasta
eðlisfræðitímanum hjá
Birni Búa í MR, vorið 2004)





Mynd 10
(ég er tígrisdýr...
....ég var samt að gera
hamsturinn! Þeir sem
þekkja mig vita hvað
hamsturinn er!)



Aukamynd
(þessi er ekki með í keppninni,
setti hana bara hérna inn til
að sýna hamstursvipinn!Ég
á því miður enga sem sýnir
handahreyfingarnar líka...
hún kemur seinna!)




Lausnin við vakningarvandamálinu (sjá síðasta póst)....

....er fundin!! Ég sá þetta fyrst í Lifandi vísindum og nú er ég búinn að finna heimasíðuna! Þetta er klukka sem hringir og þegar maður ýtir á snooze (blundur) takann þá stekkur hún af náttborðinu (eða gluggakistunni í mínu tilfelli) og felur sig undir rúmi eða borði eða fer fram á gang, bara þangað sem hún kemst. Þá kemst maður ekki hjá því að fara á fætur og finna helvítið! Stórsniðugt! Ég er búinn að setja mig á póstlista þannig að ég fæ að vita þegar hún kemur á markað...jibbý! Leyfið mér að kynna CLOCKY:

Svo er hún bara helvíti flott :)



Vakning

Ég á ótrúlega skemmtilega vekjaraklukku. Að minnsta kosti get ég sagt að hún sé skemmtileg núna þegar ég er vaknaður, ég ber ekki sömu tilfinningar til hennar á morgnana þegar hún öskrar á mig „bíííííb, bííííb, bíííííííííííííííííííb“. Það má eiginlega segja að þetta sé ástar/haturssamband...
En allavegana, þá er þessi vekjaraklukka þeim eiginleika gædd að hún hringir með tvennum hætti. Fyrst ber að telja hið hefðbundna bíbb en auk þess er hún búin útvarpsvekjara. Þeir sem þekkja mig, vita að ég hlusta á tónlist allan daginn (og þegar ég er ekki að hlusta á hana, þá er ég yfirleitt að raula eitthvað). Þessvegna er ómetanlegt fyrir mig að byrja daginn á góðri tónlist og það hefur bara gerst alla síðustu viku, þar sem ég ákvað að skipta um útvarpsstöð. Núna er það 91,9 og verð ég að mæla með henni klukkan 7 á morgnana!
Meðal laga sem hafa komið síðustu vikuna eru Jacqueline og Take me out með Franz Ferdinand, In the arms of a woman með Amos Lee, Desperado með Eagles og svo í morgun var það Angie með Rolling Stones. Það er bara ljúft að vakna við þýða rödd Mick Jagger svona í morgunsárið.
Það mætti halda að ég myndi vakna við það að liggja í rúminu og hlusta á þessi lög (og jafnvel syngja með ef ég er í sérstökum fíling) en þeir sem þekkja mig mjög vel, vita að ég er sérstakur morgunhani og sprett fram úr rúminu eða hitt þó heldur. Sannleikurinn er sá að ég þjáist af krónískri „ég-verð-alltaf-að-leggja-mig-aftur-á-morgnana“ veiki. Algjör aumingjagangur, ég veit! Ég þarf að bæta úr þessu hið snarasta! En það er að minnsta kosti mjög ljúft að vakna við góða tónlist á morgnana, hvort sem maður fer á fætur strax eða ekki :)



Fastagestur (regular)

Ég fékk sent SMS áðan. Það var svohljóðandi: „Vegna árshátíðar starfsmanna verður lokað kl 18.30 í kvöld. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum þeim sem þetta gæti haft í för með sér. Kveðja, Dominos Pizza“.

Ég held að ástandið sé virkilega orðið slæmt þegar maður fær skilaboð þegar Dominos er lokað!! Ég vissi ekki að ég væri orðinn svona góður kúnni hjá þeim! Bara fyndið....ég held ég taki samt pásu á Dominos pizzunum á næstunni, þetta hræddi mig!



Árshátíðin tókst vel í alla staði, morgunpartýið var fínt, skautarnir ágætir þó ég hafi ekki komist á svellið vegna meiðsla. Sundferðin var ljúf en sárt var að horfa á rassskellingu Frakka á íslenska landsliðinu í handbolta.
Kokkteillinn í boði KB banka var fínn og maturinn ótrúlega góður. Sjávarréttasúpan var meira að segja góð að mínu mati og ég er ekki mikið fyrir þær! Ballið var síðan alveg ótrúlega gott, Andrea Jóns sló í gegn sem DJ og ég held ég hafi misst svona 3 lítra af vökva í hreinan svita!! Bara gaman :)
Svo var það Pizza King...alltaf klassískt!
Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna mína...endilega notfærið ykkur möguleikann á að kommenta á hverja mynd á síðunni! Smellið bara á comment undir myndunum...
Myndin af Eyjólfi segir mikið um stemmninguna á dansgólfinu! Svaka stuð!! Jeeeeeiiiii



Hözzlari ársins 2005

Einu verðlaunin sem ég ætla að veita fyrir árið 2005 eru hin bráðfjörugu verðlaun fyrir hözzlara ársins (sá sem stendur sig best í viðreynslunum, fyrir þá sem eru ókunnugir sögninni að hözzla!).
Baráttan í ár var erfið, valið stóð á milli margra en eftir bráðum mánaðar umhugsun og rökræður hefur dómnefndin ákveðið að Haukur frænka sé vel að titlinum kominn!
Af þessu tilefni hefur dómnefnd ákveðið að birta mynd af manninum (The Man) í "action", þar sem hann kann vel við sig. Af myndinni sést að maðurinn er algjör meistari í leiknum, með tvær í takinu og sérstaklega verður að hrósa honum fyrir hönd þá er hann geymir undir borði (þar sem hin "gellan" sér ekki til). Ég tek ofan fyrir manninum! ;)
Haukur frænka á djamminu....



20.000??

Fjúddífjú..ég var að kíkja á teljarann minn og sá að hann er að nálgast 20 þúsundin! Það er ótrúlegt að fólk nenni að skoða þessa síðu! Hehe!
En allavegana, sá sem verður númer 20.000 fær vegleg verðlaun (hver þau verða er auðvitað ákveðið þegar nær dregur!)...það eina sem viðkomandi þarf að gera er að taka afrit af skjánum hjá sér þar sem sést í teljarann (ýta á PrtSc eða Print screen takkann á lyklaborðinu) og líma það inn í word skjal og senda mér í tölvupósti á osg2(hjá)hi.is eða á MSN! Einnig má viðkomandi vekja athygli á því í kommentakerfinu.
Og auðvitað er ekki bannað að refresha, sá sem það gerir á bara inni eilífa dvöl í Helvíti!! Guð fylgist sko með blogspot síðunum líka! Hahaha, áður en ég fer að hljóma eins og biblíubeltis- ameríkani þá ætla ég bara að hætta að skrifa og fara að borða.

p.s. Tékkið á leiknum hér fyrir neðan (þar sem myndin af oompa loompanum er)....þ.e. þið sem eruð ekki búin að fá leið á bloggleikjum ;) Mig langar að fá skrifað svona um mig, líka frá þeim sem laumulesa eða eiga ekki blogg. Múhahaha, loksins leikur sem þið verðið að taka þátt í, bloggleysingjar!



Í tíma...

...glýkógen er fróðlegt efni!
...nei, ekki svo!
...mér leiðist!
...ég skellti inn nýjum myndum á myndasíðuna mína!
...það eru myndir frá Flórída og úr sumarbústaðaferð Litla kórsins!
...myndir frá helginni eru á leiðinni inn!
...það má líka komast inn á síðuna í gegnum þriðja efsta hlekkinn hér til hægri!
...og svo vil ég benda fólki á að hægt er að kommenta á myndirnar!
...hnappurinn comment er fyrir neðan hverja mynd!
...láttu þér líða vel!



Bloggfærsla á nýju ári er á leiðinni...þangað til langar mig að prófa að athuga hvort fólk vilji segja mér eitthvað um mig?? Þeir sem vilja þykjast vera að læra í tölvunni (eins og á lesstofunni eða Þjóðarbókhlöðunni) en nenna því ekki fyrir alla muni (hóst, eins og ég, hóst) geta svarað eftirfarandi 4 atriðum:

1. Þú segir mér eitthvað handahófskennt um mig
2. Þú segir mér hvaða lag minnir þig á mig
3. Þú segir mér hvaða bragð minnir þig á mig
4. Þú spyrð mig að einhverju sem þú hefur velt lengi fyrir þér um mig

Pís át...herbergistiltektin bíður! Get ég ekki ráðið svona Oompa-loompa eins og í Kalla & sælgætisgerðinni til að taka til fyrir mig??



Ég lofa að ég blogga bráðum...um leið og andinn hellist yfir mig. Mig langaði bara að vekja athygli á þessu:

Í kjölfarið á því að fatlaður maður framdi sjálfsvíg vegna afar óábyrgrar og ærumeiðandi umfjöllunar DV um hann vil ég hvetja ALLA til að skrifa undir listann sem hægt er að fara á í gegnum hlekkinn hérna fyrir ofan!
Á sama tíma hvet ég alla til að sneiða hjá blaðinu og farga því þar sem það liggur frammi. Ég vona að einhverjir taki sig til og brenni allt upplagið á morgun í sorpbrennslunni í Gufunesi.


Um mig

  • Ég heiti Ómar Sigurvin
  • og kem frá Húsavík
  • Meira

Aðrir fallegir bloggarar


Annað gott á netinu

Síðustu færslur

Skjalasafnið

Free Hit Counters eXTReMe Tracker


eXTReMe Tracker