Gleðileg jól og

gott og farsælt komandi ár!



Fréttaskot
Þverfaglegur hópur uppeldisfræðinga, félagsfræðinga, sálfræðinga og lækna hefur ákveðið að hinir grimmu og vondu íslensku jólasveinarnir og foreldrar þeirra hafi slæm áhrif á vöxt og viðhorf ungra krakka í dag. Grimmilegar uppeldisaðferðir og bónusakerfi jólasveinanna hafa síst hvetjandi áhrif til lengdar og því leitaði hópurinn álits tískuráðgjafa og til alþjóðlegs ráðgjafafyrirtækis. Upp úr þessu frjósama, fjölþjóðlega samstarfi þróaðist hugmynd um að gera jólasveinana að meiri fyrirmyndum, táknum sem börnin gætu virt og litið upp til. Jólasveinarnir ættu þannig að hafa uppeldisgildi, auk þess að vera blíðir og með tilfinningar. Niðurstaða hópsins var einnig sú að fjölbreytnin væri of mikil og að einingu vantaði í hópinn. Því brugðu þeir á það ráð að hafa bara eitt módel og nota það módel á sveinana 13. Módelið sem hópurinn skapaði þykir bera af hvað varðar fríðleika, andlegt og líkamlegt atgervi. Dömur mínar og herrar, ég kynni Brúnkusvein:
Lengi vel hafa menn sem hafa háskólapróf í uppeldisfræðum (líkt og Georg Bjarnfreðarson) gagnrýnt foreldra sveinanna, þau Grýlu og Leppalúða. Þau hafa ríkt með harðræði og uppeldi þeirra einkennst af óttablandinni virðingu. Auk þess þykja þau almennt ljót. Þar sem börn í dag verða að skilja er að ljóta fólkið kemst aldrei neitt áfram og því sá hópurinn sig tilneyddan til að breyta útliti þeirra í samræmi við það. Þar sem rétt "lúkk" á Grýlu fannst ekki á Íslandi, var leitað út fyrir landsteinana. Haldið ykkur fast, hér kemur Sexígrýla:
Sennilega hefur Leppalúði alltaf verið sá sem skyggir hvað mest á ímynd jólasveinanna út á við og sérstaklega úti í heimi. Hann er ekki nógu "lovable" sögðu sérfræðingarnir, loðinn og ljótur. Því var það hópnum sérstök ánægja að finna alíslenskan Metrólúða:
Brúður jólasveinanna koma í Hagkaup eftir helgi. Þá verður einnig hægt að kaupa DVD diskinn Metró-jól, ævisögu fjölskyldunnar Make-over Sveinki og geislaplötuna Tanaðu með Stúfi.



Wulffmorgenthaler er sammála mér...


...vísindalega sannað!



Markmiðasetning

Síðasta ár hefur verið erfitt fyrir mann eins og mig, sem vanur er að vera á ferðinni, joggandi hvert sem ég fer (lesist: þangað sem bíllinn ekki drífur). Ég hef núna verið í 100 klukkustundir í sjúkraþjálfun og sirka 400 klukkustundir í ræktinni til að komast í almennilegt horf eftir hremmingar haustsins 2006. Þetta hefur verið lærdómsríkur tími en jafnframt reynt mikið á mig andlega og ég hef býsna oft verið langt niðri. Eins og oft vill verða, hefur þetta bitnað aðallega á þeim sem umgangast mig mest og mér þykir vænst um. Ég vil nota tækifærið og biðja þá sem ég kann að hafa móðgað eða verið hastur við á einn eða annan hátt afsökunar. Þetta horfir allt til betri vegar!

Það er mikilvægt að setja sér markmið (og oftast betra ef þau eru raunhæf). Það auðveldar manni að stefna að einhverju marki og í þessu felst sennilega mesti lærdómur ársins. Fyrst eftir sjúkrahússveruna, stefndi ég fullum fetum að því að komast í hlaupaform til þess að keppa í fótboltamóti FL 2007. Nú hef ég hinsvegar gert mér grein fyrir takmörkunum mínum og sætt mig við það að vera "bara að þjálfa" fyrir þessi mót. Ég verð líka að bregðast stórvini mínum, Davíð Halldóri, þar sem ég var búinn að lofa honum að hlaupa með honum í Reykjavíkurmaraþoninu að ári. En þar sem ég er keppnismaður að eðlisfari hef ég sett mér markmið og miðast það að nokkru leyti við umræddan Davíð. Ég er nefnilega búinn að lofa honum að hjóla samferða honum í maraþoninu og byrjaði að æfa fyrir það 19. nóvember síðastliðinn. Þar sem ég verð að hafa eitthvað að keppa að, einsetti ég mér einnig það markmið að hjóla 1000 kílómetra fyrir afmælið hans, þann 13. mars næstkomandi. Það eru um 250 kílómetrar á mánuði en ég er kominn í 222 í dag (sjá mynd).


Með hjálp Arnars Hafsteinssonar, snillings með meiru, hefur mér líka tekist að komast úr versta formi sem ég hef verið í. Þann 3. september var ég 92,5 kg (26,8 í BMI sem flokkast sem ofþyngd eða offita af stigi I eftir því hvorum megin Atlantsála maður er). Nú er ég hinsvegar 86 kíló (og því 24,8 í BMI sem er innan eðlilegra marka ef e-r hefur áhuga á BMI). Markmiðið er 85 kíló fyrir áramót og síðan 83 á endanum um miðjan mars. Haldið ykkur fast, ég kem til með að tilkynna síðar hvort þetta tekst.

p.s. Þar sem maður verður alltaf pínu meyr í desember, vil ég nota tækifærið og láta alla vini mína vita að mér þykir viiiirkilega vænt um ykkur (og ég segi þetta ekki af því ég er svo fullur!).
Hafið það sem allra allra best!



Í anda jólanna



Mér þykir það undarlegt...

...þegar BT er farið að auglýsa „ódýru pakkarnir fást í BT“ og flestir hlutirnir kosta yfir 50 þúsund kall. Til dæmis er myndavélin mín þarna á forsíðunni undir ódýru fyrirsögninni. Ekki nema 125þús bláir. Flokkast þetta undir ódýrar gjafir? Er þetta virkilega orðið normið? Sjá nánar þessa færslu.

----------------
Lag færslunnar: Beatles - Money (That's What I Want)



Andlitsbókin
Þetta er merkilegur miðill og endalaus freisting fyrir mann sem nennir ekki að læra/gera eitthvað gáfulegt við tímann sinn. Oftast eru þetta gylliboð um að svara spurningum eða álíka (Gallup ætti nú að reyna að komast í upplýsingarnar þarna og gera meta-analysu). Steininn tók þó úr í kvöld þegar ég svaraði spurningalistanum "What position are you".
Hér má sjá niðurstöðuna:
You are "The 69 Position"!You believe life is about the journey, not the destination. You discovered porn at an early age and haven't looked back since. You probably should look back every now and then because someone might be watching the porn over your shoulder. The good news is that you're an expert at clearing your web browser's history. Your friends wish they were as uninhibited and as free as you are. You're turning me on.

Þeir sem þekkja mig sjá AÐ SJÁLFSÖGÐU að þetta er fásinna hin mesta. Ég sendi sko stjórnendum þessa spurningalista harðort bréf á morgun og bið um leiðréttingu á þessu ;)

----------------
Lag færslunnar: Sir Mix-A-Lot - Baby Got Back [1992]



Áskorun.

Ég skora á þann sem ók á ungan dreng í Reykjanesbæ í gær (sjá hér) að gefa sig fram við lögreglu. Ég hvet alla þá sem vettlingi geta valdið að gera slíkt hið sama, kannski það fái viðkomandi til að hugsa sig um og gera það eina rétta í stöðunni.


Um mig

  • Ég heiti Ómar Sigurvin
  • og kem frá Húsavík
  • Meira

Aðrir fallegir bloggarar


Annað gott á netinu

Síðustu færslur

Skjalasafnið

Free Hit Counters eXTReMe Tracker


eXTReMe Tracker