Árshátíðin tókst vel í alla staði, morgunpartýið var fínt, skautarnir ágætir þó ég hafi ekki komist á svellið vegna meiðsla. Sundferðin var ljúf en sárt var að horfa á rassskellingu Frakka á íslenska landsliðinu í handbolta.
Kokkteillinn í boði KB banka var fínn og maturinn ótrúlega góður. Sjávarréttasúpan var meira að segja góð að mínu mati og ég er ekki mikið fyrir þær! Ballið var síðan alveg ótrúlega gott, Andrea Jóns sló í gegn sem DJ og ég held ég hafi misst svona 3 lítra af vökva í hreinan svita!! Bara gaman :)
Svo var það Pizza King...alltaf klassískt!
Myndirnar eru komnar inn á
myndasíðuna mína...endilega notfærið ykkur möguleikann á að kommenta á hverja mynd á síðunni! Smellið bara á comment undir myndunum...
Myndin af Eyjólfi segir mikið um stemmninguna á dansgólfinu! Svaka stuð!! Jeeeeeiiiii
0 Responses to “”
Leave a Reply