Nýjar myndir frá Árshátíð FL 2007 komnar inn á
myndasíðuna!
Sýnishorn má sjá í bordernum efst á síðunni! :)
Njótið vel!
Skrifað af Ómari; mánudagur, mars 26, 2007.
Pæling.
Ég ætla að stofna nýtt heilsufyrirtæki sem sérhæfir sig í námskeiðinu
Booty Camp.
Update 16:13:21
Þetta verður pottþétt þemalag fyrirtækisins.
Skrifað af Ómari; miðvikudagur, mars 21, 2007.
Áráttur Ómars part I
Hæ, ég heiti Ómar og ég er með blæti (fetish). Ég er með samloku-fetish. Frá því ég var lítill strákur hef ég gjörsamlega eeelskað grillaðar samlokur og það líður varla dagur sem ég fæ mér ekki samloku með skinku og osti (jafnvel e-ð aðeins meira fannsí smannsí við hátíðleg tækifæri). Nú er svo komið að ég er einnig mjög sérvitur og finnst ekki öll samlokugrill nógu góð. Uppáhalds samlokugrillið mitt núna er t.d. heima hjá Tótu. Það er þeim eiginleikum búið að það ristar brauðið (þ.e. gerir dökkar rákir í það og klemmir allsstaðar jafn mikið) og hitar það perfectly rétt. Þetta er gamalt rautt, teflon grill and I love it. Grillið sem er heima skiptir brauðinu t.d. hornrétt og gerir brauðsneiðarnar harðar en ristar þær ekki. Ég veit að George Foreman grillið (so proud of it I put my name on it) er með svona röndum en ég held að það hiti bara samlokurnar en geri þær ekki svona passlega crunchy og ég tími ekki að kaupa mér það til að verða fyrir vonbrigðum.
Ég hef jafnvel leiðst svo langt að fara og skoða "sandwich press" á Amazon en þar geturðu fengið svona veitingahúsagræju á 3000 kall, þannig að það yrði í heildina töluvert betri díll en 9000 kr GF grill. Veit e-r hvar maður getur fengið svona ristasamlokugrill eins og amma og afi áttu í gamla daga (eiga það reyndar enn...fæ mér ALLTAF samloku þegar ég fer til Húsavíkur)??
Skrifað af Ómari; fimmtudagur, mars 08, 2007.
Verður þú númer 40.000?Keppnisandinn kemur dálítið upp í manni í prófum (ásamt því sem að maður man ekki neitt merkilegt til að skrifa um). Þess vegna fannst mér mjög gaman að vera með Grettuna 2007. Nú tók ég eftir því að teljarinn fer að nálgast 40.000 og fannst mér tilvalið að gefa einhver smáverðlaun fyrir þann sem verður númer 40.000. Þannig að sá sem sér að hann er fjörutíuþúsundasti gesturinn má skilja eftir komment og ég get séð út frá iptölunni hver það er :)
Skrifað af Ómari; þriðjudagur, mars 06, 2007.
Klukkan
10:10:10 í fyrramálið verða úrslitin kunngerð!
Sigurvegarinn á von á góðu!
Munið að kjósa, þetta er æsispennandi! :)
Skrifað af Ómari; laugardagur, mars 03, 2007.
Gaman
Ég fór í afmæli til Hönnu Rutar í gær. Það var gaman!
Þar prufukeyrði ég nýju skóna. Það var gaman!
Ferrari liðið bauð mér að sjálfsögðu auglýsingasamning. Það var gaman!
Katsjíng!
Skrifað af Ómari; fimmtudagur, mars 01, 2007.