300!Jæja, þá er komið að síðasta póstinum hér á þessu bloggi. Ástæðan fyrir því hvað hann var lengi að koma er eflaust treginn við það að hætta að blogga (þó ég hafi nú kannski ekki verið neitt sérstaklega duglegur við það).
En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott og því er það mér mikil ánægja að kynna nýtt og betra blogg. Það er staðsett á nýja léninu mínu,
omarsigurvin.com, og vonast ég eftir að sú síða verði miðstöð mikilla afreka á komandi árum. Endilega hendið út þessari og bætið þeirri nýju á bloggrúntinn. Auk þess má núna senda mér póst á omar@omarsigurvin.com.
Góðar stundir!
P.s. Mér þætti vænt um að sjá sem flesta á föstudaginn í Hinu húsinu. Hér fyrir neðan er auglýsing sem ekki er alveg tilbúinn en verður það í kvöld. Hinsvegar breytast staðreyndirnar á henni ekki :)
0 Responses to “”
Leave a Reply