Tribute - David Hasselhoff
Hver man ekki eftir Strandvörðum og hinum ómótstæðilega David Hasselhoff?? Ég man allavegana eftir að hafa setið spenntur fyrir framan skjáinn þegar
LAGIÐ byrjaði „Some people stand in the darkness, afraid to step in to the light.....úúúú, don't you worry“ o.s.frv. Augljósir hæfileikar David Hasselhoff leynast engum en hann hefur alltaf verið mjög heitur í Þýskalandi. Maðurinn er náttúrulega bara snillingur, góður leikari, frábær þáttaframleiðandi og geggjaður söngvari (eins og kemur greinilega fram í Baywatch laginu). Ekki spillir fyrir hvað hann er myndarlegur, þýska gæðagenið út í gegn.
Baywatch þættirnir voru yfirfullir af spennu, fallegu kvenfólki og drama, betra sjónvarpsefni finnst varla. Reyndar fór strákurinn hans „Hoffmeisters“ (hét hann ekki Hobie eða eitthvað svoleiðis?) alltaf frekar mikið í taugarnar á mér, hann var svo plebbalegur. Reyndar voru þættirnir farnir að snúast upp í einhverja vitleysu undir lokin, helmingurinn var farinn að vera eins og tónlistarmyndband, væmið lag undir og fólk að hlaupa eftir ströndinni. Ég stefni á það að eignast alla þættina bráðum. Verst að ég finn þá bara á VHS, lame-o!
Þeir sem eru efins um ágæti og hæfileika Davids Hasselhoffs ættu að kíkja á
þetta! Þetta er bara snilld....
ATH! Umrædd grein er aðeins mat höfundar og þarf á engan hátt að endurspegla skoðun þjóðarinnar eða 365 ljósvakamiðla!
0 Responses to “”
Leave a Reply