Nammigrís/nammisvín?? Fyrst að það er hægt að vera nammigrís þá hlýtur að vera hægt að vera nammisvín líka. Ég er að minnsta kosti kominn langt út fyrir þau mörk að vera lítill, sætur grís. Ég er stórt, gráðugt nammisvín! Nú sit ég á lesstofunni á Læknagarði (þangað sem ég var að koma) með 555 gr. af nammi úr Nammilandi Hagkaups í annarri hendi og Mixflösku í hinni. Fyrir framan mig liggur bók á stærð við símaskrá New York, Boron heitir höfundurinn að henni. Spennandi.
Ég get ómögulega.... ....lagt í stæði ef tónlistin í bílnum er of há. Mér finnst einbeitingin hverfa við þær aðstæður. Skrítið.
Laugardagur til lukku? Ég er búinn að afsanna þá kenningu, keypti mér Happaþrennu áðan og vann EKKI!! Kannski hefði ég átt að kaupa hana í gær, því föstudagur er til fjár (var það ekki annars svoleiðis?).
0 Responses to “”
Leave a Reply