MyndabloggÞar sem ég var að fjárfesta í nýjum síma, þá tæmdi ég dót af gamla símanum inn á tölvuna. Þar á meðal voru nokkrar myndir sem höfðu ratað í símann í daglegu amstri og mér datt í hug að það væri skemmtilegt að birta nokkrar hér (sumar fá nú ekki að fara á veraldarvefinn, sko!).
Já, svona meðan ég man, eru ekki allir búnir að fjárfesta í Magimix töRfatækinu?
Spurning um yfirlestur áður en maður hendir auglýsingum í blaðið?
Að minnsta kosti vona ég að fólkið sem kaupir Volkswagen POO eigi svona törfatæki!
Nýjasta nýtt frá VW. Með iPoo ferðaklósett í skottinu!
Í rannsóknarverkefninu rölti ég um hin ýmsu húsakynni Landspítala- háskólasjúkrahúss og rakst þar meðal annars á tvo unga menn sem ég hélt umsvifalaust að hefðu sloppið út af geðdeildinni en þegar ég hafði kallað á vaktmennina, var mér bara tjáð að hér væri um að ræða læknanema sem væru að hringja í mömmu sína að láta vita að allt væri í lagi og að þeir myndu koma heim í mat! Ég er mjög feginn að þetta eru framtíðarlæknar Íslands!
Davíð og Karl, framtíðaryfirlæknar, að hringja í mæður sínar.
Síðar sama dag var ég á rölti um húsakynni annars læknanema og rak þá í rogastans!!! Kýs virkilega e-r Framsóknarflokkinn í dag?? Og hvernig getur viðkomandi læknanemi eðlað sig í baðinu þegar ekkert bað er í húsakynnum hans? Hvaða bað á hann við? Baðið mitt? Baðið ÞITT? Ég myndi læsa útidyrahurðinni í kvöld! Þessum læknanemum er trúandi til alls!
Undarlegt háttalag læknanema um miðjan dag (framhald af vinsælli bók)
Svo mörg voru þau orð!
p.s.
HVERSU gaman var á Kofanum í gær?
0 Responses to “”
Leave a Reply