Ég fékk hugmynd!
Af hverju fer Leoncie ekki að endurgera íslensk dægurlög í stað þess að vera að semja sín eigin? Hver myndi ekki vilja heyra hana syngja gömlu slagarana hans Bjögga? ímyndið ykkur bara íðilfagra rödd hennar í lögum eins og „Ég sá hana í horninu á Mánabar....“ Þá getur hún líka ekki klikkað á textanum eins og hún gerir í sínum lögum.
Svo gæti hún líka auðvitað breytt aðeins um ímynd, farið t.d. að taka lög með Bubba (ég meina, skemmtarinn, röddin hennar og
Stál og hnífur...blanda sem getur
EKKI klikkað!).
0 Responses to “”
Leave a Reply