Gott- Nýju silkirúmfötin mín
- Allur bakarísmaturinn úr Mosfellsbakarí
- Að vera einn á 4. hæðinni á Bókhlöðunni og sökkva sér í lestur
- Að geta náð sér í uppáhalds sjónvarpsefnið og myndir sem maður á eftir að sjá á netinu - ÓKEYPIS
- Nýju, rauðu lakkskórnir mínir
- Fallegu, fallegu, nýju gleraugun mín - BÆÐI!
- Ray LaMontagne (sem heitir í raun Raycharles LaMontagne) - hljóðdæmi
- Að sjá krúttlega manninn með Parkison sem kemur í sjúkraþjálfunina kyssa og knúsa konuna sína þegar hún kemur að ná í hann. Þau minna mig á ástfangna unglinga!
- Ræktin
- Ruslmatur og kók
- Að eiga góða vini
- Að það er árshátíð í næstu viku!
Vont- Að þurfa að fara út þegar það er kalt á morgnana
- Að lesa glósurnar um kvenæxlin hjá Kristrúnu
- Another night með Real McCoy - hljóðdæmi
- Að vera of feitur
- Slitgigt í hnéinu og of mikið af verkjatöflum
- Að hafa ekki tíma til að hitta góða vini
Merkilegt hvað er margt á vont listanum sem á sér andstæðu á gott listanum! Sem betur fer er gott listinn yfirleitt MUN lengri en hinn. Líka fyndið að hafa andstæður á sama listanum (eins og t.d. ræktin og ruslmatur og kók er ekki að virka saman!).
Viðbót, kl. 15:24Gott = Silicon Power minniskubburinn minn. Keypti hann BARA út af nafninu! (Kannski pínu af því hann kostaði bara 999 kr. líka).
Vont = varaþurrkur í frosti. Djö***** frost!
0 Responses to “”
Leave a Reply