sunnudagur, september 26, 2004
þriðjudagur, september 21, 2004
Einnig er hér mjög góð mynd af Ásdísi Eir síðan í Selsferðinni í 3.H. Njótið! (smellið á mynd fyrir stækkun - tek enga ábyrgð á afleiðingunum!!)
Einnig legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.
föstudagur, september 10, 2004
þriðjudagur, september 07, 2004
- Ég: Góða kvöldið, Ómar Sigurvin heiti ég
- Salur: *klapphljóð* frá einum einstaklingi
- Ég: Ég er þriðji yngstur á 1. ári og verð tvítugur 21. desember n.k.
- Ég: Kem úr MR, 6.M., líkt og margir á undan mér í röðinni
- Salur: Enginn klappar en svona fimm sem eru kurteisir og púa svona *púhhhhhhhh*
- Ég: Ég er einungis annar úr 1000 manna ættinni minni sem fer í læknisfræði þannig að ég er ekki læknabarn og er á föstu
- Salur: Næsti maður á eftir mér í röðinni klappar en svona fimm manns (sömu fimm??) púa þegar ég geng af sviðinu
Já, þetta var gaman...að vera púaður niður þegar ég sagði nú ekkert sem vert er að púa yfir. En reyndar léði Lilja Rut, bekkjarsystir og Stöðvarfirðingur, máls á því að hugsanlegt væri að fólk hefði verið að púa vegna þess að ég sagðist vera á föstu. Þessi viðleitni hennar vakti hjá mér bros og hugsanlegt að hún hafi haft rétt fyrir sér :) Eitt sem styður þessa kenningu hennar ekki er samt það að ég heyrði bara svona digurbarkaleg kallapú!!
En þetta var alls ekki svo slæmt, föstudagurinn var í alla staði alveg brilljant og fólkið frábært. Sérstaklega er líka frábært að við höfum ákveðið að fara saman í fótbolta í Sporthúsinu á þriðjudögum í vetur og fórum í fyrsta tímann í dag. Það var G-A-M-A-N.
En allavegana, nú er Bjarney Anna sennilega komin til Düsseldorf og við hana segi ég bara Viel Spass.
Bis später
p.s. Eftir að ég hætti að læra þýsku og dönsku finnst mér geðveikt gaman að tala þessi tungumál svona einstaka sinnum. Merkilegt, sérstaklega í ljósi þess að ég hataði dönsku meira en pickles-ið á McDonald's